564 4050

Bootcamp

BC hvítt - svart

Nánari upplýsingar og skráning á námskeið má finna á heimasíðu okkar hér

Boot Camp er góð leið til að koma þér í besta alhliða form sem völ er á. Æfingarnar eru hannaðar til að ögra þér andlega og líkamlega svo að þú náir hámarks árangri. Við leggjum mikið upp úr því að hafa æfingarnar fjölbreyttar og skemmtilegar og frá upphafi Boot Camp höfum við aldrei tekið sömu æfinguna tvisvar. Tíma þínum er vel varið því þú þarft aðeins þrjár æfingar á viku til að komast í dúndurform!

Æfingakerfið sem er þróað og mótað af okkur sjálfum ruddi braut á Íslandi þegar kemur að óhefðbundinni og ákafri þjálfun. Nú hafa yfir 10.000 manns prófað æfingarnar en við erum sífellt að betrumbæta kerfið og getum stolt sagt að það hefur aldrei verið betra en það er í dag!

bootcamp29-e1398806435338

Hver Boot Camp æfing er klukkustunda löng og er hver mínúta vel nýtt. Að auki eru opnar sérhæfðar æfingar í hverri viku svo sem M.o.M.-æfing („Mind over Matter“ – if you don’t mind, it don’t matter!) en þar verður þér ögrað meira andlega en á venjulegu Boot Camp æfingunum. Einnig er opin Hlauparaæfing þar sem þú getur bætt hlaupagetu og -tækni þína, Outsiders útiæfing og teygjutími. Það er því hægt að mæta og æfa á hverjum einasta degi vikunnar! Á tveggja mánaða fresti er svo tveggja klukkustunda löng útiæfing sem byggir mikið á liðsheild og samvinnu en á þeim uppgötvar þú að mörk þín liggja mun ofar en þig grunar.

Þeir sem hafa komið sér í gott Boot Camp form hafa ekki látið neitt stöðva sig og afrekaskrá Boot Campara er ansi aðdáunarverð. Boot Camp hefur undirbúið einstaklinga fyrir ofurhlaup og Iron Man keppnir, að klífa á topp Mount Everest og að sigra hinar ýmsu keppnir. Auk þessu eru öll hin óteljandi persónulegu markmið og verkefni sem hver og einn sigrast á í hverri einustu viku!

Vinsælt

Lífstílsbreyting Lilju NÝTT

Foam Flex Vyper NÝTT - 18. okt

Body Grit - NÝTT

AntiGravity Aerial Yoga

Dansskóli Birnu Björns

Crossfit grunnur

Hot Yoga

Kraftform

Strong by Zumba NÝTT

Power Pilates - 25. okt