Sporthúsið Gull
Sporthúsið Gull er lítil og heimilisleg stöð / tækjasalur á efri hæð Sporthússins í Kópavogi.
Stöðin er búin nýjustu og bestu fáanlegu líkamsræktartækjum frá Technogym á Ítalíu. Öll áhersla verður lögð á persónulega og faglega þjónustu. Þá verður íþróttafræðingur og/eða sjúkraþjálfari ávallt til staðar á meðan stöðin er opin, mánudaga til laugardaga, tilbúinn að leiðbeina þér, setja upp persónulega æfingaáætlun og aðstoða þig við að setja þér markmið og að ná þeim.
![]() | ![]() |
Einnig verður þverfaglegt samstarf við Kírópraktorstofu Íslands og Sjúkraþjálfunina Sporthúsinu en bæði fyrirtækin eru í húsnæðinu.
![]() | ![]() |
Þægileg setuaðstaða er á staðnum og því hægt að tylla sér og spjalla eftir æfingu. Nýr og glæsilegur búningsklefi fyrir konur verður einnig partur af nýju stöðinni en karlarnir munu nota sama klefa og þjónar annarri starfsemi í Sporthúsinu.
![]() | ![]() |