564 4050

Barnagæslan Krílabær

Barnagæslan Krílabær

Opnunartími:

Mánudaga - föstudaga kl. 08:30 - 13:30 og kl. 16:00 - 20:00
Laugardaga kl. 09:00 - 13:00
Sunnudaga kl. 10:00 - 13:00

Barnagæslan Krílabær er við æfingasalinn í stórum og rúmgóðum sal. Þar geta börnin horft á barnaefni í dýnuhorninu, litað eða leikið sér með ýmiskonar leikföng á meðan mamma og pabbi rækta sjálfan sig.

Reglur

  • Allir sem nýta sér þjónustu barnagæslunnar þurfa að undirrita samning. Reglur barnagæslunnar gilda fyrir viðskiptavini jafnt sem starfsmenn Sporthússins sem nýta sér barnagæsluna á auglýstum tímum.

  • Aðeins er leyfilegt að koma með börn undir 12 ára aldri í barnagæslu Sporthússins á auglýstum tímum barnagæslu.

  • Af öryggistástæðum er stranglega bannað að koma með börn á öðrum tímum en reglur segja til um. Vegna slysahættu er einnig bannað að taka börn með sér í tækjasal, teygjusal, sturtur, pottasvæði, eða önnur rými í húsinu.

Barnagæslan Krílabær

Aldurstakmark

  • 0-4 ára á morgnana
  • 1 árs og eldri seinnipartinn og laugardaga

Verðskrá

  • Stakur tími = 300 kr.
  • Stakur tími á systkini (óháð fjölda) = 400 kr.
  • 10 tíma kort = 2.500 kr.
  • 20 tíma kort = 3.900 kr.
  • 1 mánaða kort (ótakmarkaður aðgangur) = 2.990 kr.

  • Greitt er fyrir þjónustuna í móttöku, og miði afhentur starfsmanni barnagæslunnar þegar komið er niður.

Hámarkstími fyrir barn er 1,5 klst. Hámarkstími er tilgreindur barnanna vegna og eru foreldrar/ forráðamenn beðnir um að virða hann.

Aðlögun barns í barnagæslu er lágmark tvö skipti (í fyrsta skipti er heimsókn með foreldri/forráðamanni. Í annað skipti er foreldri með barni í 15-30 mín og skreppur svo fram í 30 mín) Tíminn lengist eftir því hversu vel barni gengur að aðlagast. Sé barnið órólegt er foreldri/forráðamaður þess sóttur. Starfsfólki er ekki heimilt að skipta á bleiubörnum og er foreldri/forráðamaður sóttur í þeim tilvikum.

Náist hámarksfjöldi í barnagæslu er starfsmanni heimilt að vísa fólki frá.

Börn dvelja í Krílabæ alfarið á ábyrgð foreldra/forráðamanna sinna.

Vinsælt

Lífstílsbreyting Lilju NÝTT

Foam Flex Vyper NÝTT - 18. okt

Body Grit - NÝTT

AntiGravity Aerial Yoga

Dansskóli Birnu Björns

Crossfit grunnur

Hot Yoga

Kraftform

Strong by Zumba NÝTT

Power Pilates - 25. okt