Fyrirlestur 17. október
Fyrirlestur
Helgaðu þig heilbrigðum lífstíl
Fyrirlesarinn að þessu sinni er Hafrún Kristjánsdóttir. Hafrún er aðjúnkt og sviðstjóri íþróttasviðs í HR. Hún hefur lokið kandídatsprófi og BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands. Að auki lauk hún doktorsprófi í líf og læknavísindum frá Háskóla Íslands.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um áhrif hreyfingar á vellíðan en megináhersla verður þó hvernig hægt er að helga sig hreyfingu og lágmarka líkurnar á brottfalli. Kenndar verðar áhrifaríkar leiðir til að ná því markmiði.
Fyrirlesturinn verður í sal 9 mánudaginn 17.október kl 20.30 í Sporthúsinu Dalsmára 9-11, 201 Kópavogi